Myndirnar skipta öllu máli
Ein stærsta ákvörðun sem við tökum í lífinu er að bindast annarri manneskju. Það er misjafnt hvaða leið við veljum þegar kemur að því að láta gefa okkur saman en allir vilja eiga fallegar minningar frá þessum degi. Hvort sem þið viljið giftast í kirkju eða undir fossi langt utan alfaraleiðar þá er ég boðinn og búinn að takast á við það verkefni.
Myndirnar frá deginum skipta öllu máli. Þær eru óendanlega dýrmætar og þvi ber að vanda valið þegar kemur að ljósmyndara. Þið munuð skoða myndirnar sem ljósmyndarinn skapar um ókomin ár og verða þær ómetanlegur vitnisburður um ást ykkar og hvernig ykkur leið á þessum merkilega degi. Það væri heiður að fá að taka þátt í stóra deginum með ykkur.
Smellið hér að neðan til að sjá samantekt af uppáhaldsmyndum úr brúðkaupum eða skoðið neðar á síðunni til að sjá dæmi um brúðkaup sem ég hef myndað.
Brúðkaupin
Hér má sjá dæmi um brúðkaup sem ég hef myndað undanfarið og mun ég bæta inn í listann reglulega.
Laufey og Hinrik
Ég var svo himinlifandi að fá að vera með þeim Laufeyju og Hinrik þegar þau giftu sig í Hofskirkju í Öræfum. Þetta er yndisleg kirkja og umhverfið sömuleiðis. Við áttum góðan dag saman og úr urðu fallegar myndir.
Laura og Eva
Þær Laura og Eva komu til Íslands og völdu einn af mínum uppáhalds stöðum á landinu, þ.e. Snæfellsnesið til að láta gefa sig saman og fórum við víða til að taka myndirnar þeirra.
Steina og Biggi
Þau giftu sig í hinni gullfallegu Fríkirkju í Hafnarfirði. Dans og lífsgleði einkenndi daginn þeirra. Það var dansað í athöfninni, það var dansað í myndatökunni og það var heldur betur dansað í veislunni
Eydís og Davíð
Ég sótti þau Eydísi og Davíð heim á Skagaströnd og við áttum saman frábæran tíma. Við fórum víða í kringum bæinn og er óhætt að segja að þau voru ekki mikið að stressa sig á þessu og léku á alls oddi og myndirnar urðu frábærar.
Sandra og Axel
Þau voru gefin saman í kirkjunni á Bessastöðum en við ákváðum að fara seinna í myndatökuna og gáfum okkur næstum heilan dag í það og skemmtum okkur konunglega. Alltaf gaman að geta farið í myndatökuna sjálfa á öðrum degi, það býður upp á svo mikla fjölbreytni og það er enginn að flýta sér neitt.
Ólöf og Bjarni
Ólöf og Bjarni voru með metnaðarfullar hugmyndir um ævintýrabrúðkaup um áramótin. Það skyldi nota jólaljósin og bæta við stjörnuljósum. Það var ískalt og það verður að segjast að þau, og þá sérstaklega brúðurin, stóðu sig eins og hetjur og leyndu því vel hversu ótrúlega kalt var þarna á þessu kvöldi.
Linda og Maggi
Dagurinn byrjaði snemma og þurfti ég að hendast á milli því ég myndaði undirbúning þeirra beggja, hún í Árbænum og hann í Hafnarfirði. Þau giftu sig í einni af mínum uppáhalds kirkjum, Lágafellskirkju þar sem myndast alltaf frábær og innileg stemmning. Veislan var svo algjörlega stórkostleg!
Nota og Bjarni
Nota er upprunalega frá Kosovo og það dugði ekkert minna en að flytja alla stórfjölskylduna inn til Íslands til að mæta í brúðkaupið. Úr varð eitt skemmtilegasta teiti sem ég orðið vitni að. Vonandi verður svona gaman í brúðkaupsafmælunum líka. Ég elskaði að mynda þessi tvö!
Guðrún og Dagur
Þau ætluðu að láta gefa sig saman á þaki Gamla Bíós en veðurguðirnir voru ekki að spila með svo þau fengu inni í Neskirkju með engum fyrirvara. Athöfnin var frábær en veislan um kvöldið var á mælikvarða sem sést ekki oft. Herra Hnetusmjör og Jón Jónsson trylltu lýðinn langt fram á nótt. þvílíkt stuð.
Sara og Ingimundur
Þegar gestirnir mættu í kirkjuna þennan dag voru þau öll að mæta í skírn dóttur Rósu og Ingimundar. Það kom því öllum á óvart þegar Sara gekk inn kirkjugólfið undir brúðarmarsinum. Það er óhætt að segja að þau tvö eru full af gleði og húmor og var dagurinn með þeim alveg frábær.
Marta og Hjálmar
Þau giftu sig í kirkjunni á Þingvöllum og var troðið út úr dyrum. Lítil kirkja fyrir risastóra persónuleika. Veislan var haldin í stóru tjaldi við vatnið. Allir fengu lopapeysu, sáu flugeldasýningu sem skákar skátunum og logaði stór bálköstur fram á morgun. Þau kunna svo að halda sveitabrúðkaup!
Andrea og Dominic
Þessi komu og voru gefin saman við Hvítá í viðurvist nánustu fjölskyldu. Athöfnin var falleg og var greinilegt að fólkið þeirra samgladdist þeim innilega. Svo var hellt í glösin aftan á pallbíl og allir gerðu sér glaðan dag á meðan þau fóru í myndatökuna. Allt mjög öðruvísi og hressandi.
Stefany og Helgi
Athöfnin fór fram í einni af mínum uppáhaldskirkjum til að mynda í eða Reykjaneskirkju. Það voru svo mörg ung börn sem tóku þátt og/eða voru á fremsta bekk sem gerir allt miklu skemmtilegra. Þessi brúðhjón eru sko full af lífi og skemmtum við okkur konunglega og hlógum mikið.
Ásta og Danni
Það var draumur að mynda Ástu og Danna. Við komumst fljótt að því að við erum öll á sömu blaðsíðu, Tolkien nördar, með sama húmorinn og öll pínulítið klikkuð. Þau eru með ólíkindum skemmtileg. Þau nutu þess að vera í myndatöku og léku á alls oddi. Í veislunni var kvikmyndaþema og brjálað stuð.
Katrín og Steinar
Þau giftu sig í Grafarvogskirkju þar sem hress og lífleg tónlist réð ríkjum. Dóttir þeirra stal stundum senunni og er alltaf skemmtilegast þegar börnin fá að ráfa svolítið um. Það sem var óvenjulegt við þeirra brúðkaup var að þau voru búin að skipuleggja mikinn fjölda hópmynda fyrir stórfjölskylduna.
Gabríela og Egill
Mér þykir alltaf vænt um að hafa tekið þátt í þessum degi. Þau eru svo opin og innileg og auðvelt að hrífast með þeim alveg frá fyrsta fundi. Þau áttu svo frábæra sögur af þeirra sambandi. Dóttir þeirra var snillingur og uppátækjasöm og bjó til ótal augnablik sem ég náði að mynda.
Svanhvít og Kristinn
Athöfnin fór fram í einni vinsælustu kirkjunni eða Háteigskirkju þar sem stóra altarið býður upp á svo skemmtileg sjónarhorn fyrir myndatöku. Við fórum svo í Hellisgerði og náðum fínum myndum en ég man að það mátti litlu muna að drónamyndirnar yrðu ekki til vegna flugbanns þegar ég ætlaði að taka á loft.
Sólveig og Þórir
Þvílíkir stuðboltar þau Sólveig og Þórir. Athöfnin var full af gríni, myndatakan næstum of skemmtileg á köflum og veislan algjörlega frábær. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar MC Gauti mætti upp á svið en svo bætti ennþá meira í þegar brúðhjónin tóku við og röppuðu eitt lag. Það ráða ekki allir við það!
Thelma og Gísli
Ég var svo ánægður þegar Thelma og Gísli sögðu mér að þau væri til í að finna fallegan stað þar sem hægt væri að mynda í þeim fimbulkulda sem fylgdi þessu ótrúlega fallega veðri. Þau ásamt börnunum sínum stóðu sig eins og hetjur á meðan ég skalf vel dúðaður. Þau uppskáru líka fallegar myndir fyrir vikið.
Chiara og Binni
Þau voru með mjög ákveðnar skoðanir á hvernig myndirnar ættu að vera, svarthvítar og með sérstöku útliti. Athöfnin var í veislusalnum en við brugðum okkur í myndatöku áður en við mættum þangað. Það má segja að þetta hafi verið sérstakt og skemmtilega öðruvísi brúðkaup og myndataka.
Thelma og Pétur
Athöfnin og veislan var á Hótel Kríunesi sem er í miklu uppáhaldi hjá mér. Þau voru gefin saman utandyra, veðrið var frábært og allt gekk vel. Við höfðum haft ákveðnar áhyggjur af mýflugunum sem voru í óvenjulega miklu magni á þessu svæði þær vikurnar. Þær höguðu sér þó vel rétt á meðan á athöfninni stúð
Viltu bóka tíma í myndatöku?
Heyrðu í mér og við búum til eitthvað frábært saman. Smelltu hér að neðan til að hafa samband